Gert er ráð fyrir að keppendur komi með hjólin til skoðunar á laugardeginum. Takmarkaður skoðunartími verður á sunnudagsmorguninn. Hann er ætlaður þeim sem þurfa “endurskoðun” eða hafa af óviðráðanlegum orsökum ekki getað mætt á laugardeginum.
En hvað um það – Allir mæta glaðir á svæðið á laugardeginum og fara beint í að ganga frá skráningu. Hún er tvískipt. ..
Fyrst fer keppandi með hjólið (dautt á mótor takk!) og hjálminn til skoðunar á sérstakt skoðunarsvæði (skilti munu vísa veginn). Þegar skoðun á hjóli hefur farið fram, fær keppandi sérstakan “Í lagi” seðil. Þessi seðill er forsenda fyrir seinni hluta skráningarinnar – nefnilega pappírsmálunum.
Með bros á vör mætir keppandi í innritunartjaldið með “Í lagi” seðilinn, ökuskírteini, pappíra um að hjólið sé skráð/tryggt og undirritaða þátttökuyfrilýsingu (yngri en átján muna undirritun forráðamanna). Þátttökuyfirlýsingar verða aðgngilegar á hér á netinu innan tíðar.
Þegar búið er að stemma af alla hluti fær keppandi að lokum afhent ýmiss gögn um keppnina ásamt svo hinni geysilega verðmætu tímatöku-bólu..en allt snýst jú um að koma henni hvern hringinn á fætur öðrum – á sem skemmstum tíma!
Munið – þeir sem eru með alla pappíra klára, ganga fyrir í röðinni.
Þátttökutilkynningar verða aðgengilegar til útprentunar, hér á netinu innan tíðar.
MUNIÐ – keppendur rúlla hjólum sínum um svæðið á handafli